STRÁKARNIR OKKAR

Gott hjá strákunum okkar.  Hverjir eru það sem eru annars að níða handboltann niður.  Talandi um jaðaríþrótt og fámennisíþrótt.  Fótbolti er reyndar vinsælasta íþrótt í heimi, en handboltinn kemur eitthvað í humátt á eftir, nánar tiltekið númer hundrað fimmtíu og þrjú.  Tveim sætum á eftir indversku rottuhlaupi.  Nei þessi brandari er auðvitað útþynntur.  Handboltinn er auðvitað alvöru íþrótt og við stöndum svo sannarlega með strákunum okkar. 
mbl.is Íslendingar í úrslitaleikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hallærisleg athugasemd.  Fáránleg.  Einn sem gat ekki bara glaðst.  Nei varð að pota.  Spurning um að not bíb dæmið hans Óla.  Í stað þess að segja eitthvað neikvætt gastu bara sagt bíb.  Hefur þú ekki eitthvað jákvætt að segja þá er spurning um bíba smá.

Hanna (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 17:22

2 Smámynd: Gunnar Freyr Rúnarsson

Hanna mín  Ég dýrka strákana okkar þessa dagana.  Hjarta mitt er að rifna af stolti.  Skil ekki hvað þú átt við um niðurrifsstarfsemi.  Hins vegar hef ég stundum verið fúll á móti, eins og gengur.  Þá kalla ég þetta sport rottuhlaup

Gunnar Freyr Rúnarsson, 22.8.2008 kl. 18:40

3 identicon

Boltaíþróttir á Olympíuleikum hafa nú ekki þótt merkilegar hingað til en vegur þeirra fer samt vaxandi. Við klakverjar höfum auðvitað verið sérlega lélegir á þessum leikum  í sundinu, badmintoninu, og frjálsu íþróttunum (leikarnir snúast mest um frjálsar)en reyndar ágætt þannig hjá judomanninum okkar.

Aldeilis rábær frammistaða handboltaliðsins gleður þjóðina auðvitað mjög og verðlaun þar í öllu falli stórkostlegt. Kannski gull,hver veit?

Sir Magister (IP-tala skráð) 23.8.2008 kl. 07:49

4 identicon

Heyr, heyr Þó stundum sé glensað og grínað þá er enginn vafi á að Allir Íslendingar hljóta bara að samgleðjast góðu gengi landans, í sama hverju er.

Það var auðvitað löngu kominn tími á að gera stóra hluti á stóru móti eins og 'OL og nú er það handboltinn sem blómstrar að þessu sinni. Við höfum reyndar alltaf verið góð/ir í honum og trúlega er það hin sterklega líkamsbygging okkar  

Áfram.. alla leið upp á efsta pall! 

Alma (IP-tala skráð) 23.8.2008 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Freyr Rúnarsson
Gunnar Freyr Rúnarsson
Kominn á góðan aldur og í góðu jafnvægi.

Spurt er

Hvað á ég að gera á HM?

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 4717

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband