Eiríkur Prívatmaður

Við þekktum þennan mann.

Við alloft sáum hann. 

Ýmislegt sérkennilegt til fræðgar sér hann vann.  

 

Ég opnaði Frétablaðið á þjóðhátíðardaginn til að finna dagskrá dagsins.  Þegar ég renndi yfir dánartilkyningarnar af gömlum vana sá ég að enn einn gamall félagi hafði safnast til feðra sinna.  Eiríkur Björgvinsson Prívatmaður var mikill vexti og gífurlega hávaxinn.  Maður sá hann oft í bænum og tók eftir þessum glaðlynda manni sem oftar en ekki var léttklæddur með heilsuvindil í kjaftinum og gnæfði yfir fjöldann.  Eiríkur átti sér mörg dularfull áhugamál m.a skákina, en því miður náði ég aldrei að tefla við hann.  Hann var þó í merkilegum pælingum.  Sagt var að í þröngum hóp hafi hann verið kallaður Prívatmaðurinn.  Ástæðan var sú að hann tók eitt sinn þátt í skákmóti á Grand Rokk.  Þegar hann var spurður að nafni brást hann þannig við að það kæmi viðkomandi ekki við.  Nafnið væri Prívat.  Undir því nafni tefdi hann síðan á mótinu.  Ekkert veit ég um sannleiksgildi þessarar sögu, en ef sagan er góð, þá er hún sönn eins og maður sagði.  Oft fannst okkur hugmyndir Eiríks jaðra við að vera geggjaðar.  Menn tengdu hann oftar en ekki við Sundin Blá, en ekki nokkur maður hefur staðfest að hann hafi nokkru sinni verið þar.  Eiríkur var m.a þekktur fyrir að stofna körfuknattleiksdeild Fram, en það félag var á tímabili mikið stórveli í körfubolta, þau fáu ár sem deildin starfaði.  Eiríkur æfði oft með mér í Kjörgarði og Orkulind, sem seinna gekk undir nafninu Stevegym.  Eiríkur æfði alveg á sínum forsendum og tók æfingar sem maður hafði aldrei séð áður.  Með honum í för var oftar en ekki súrmjölkin góða, sem hann hafði tröllatrú á.  Við sem stóðum að frægum kraftavef á sínum tíma tókum við hann viðtal.  Það viðtal segir meira en mörg orð um hversu merkilegur Prívatmaðurinn var.  Viðtalið er því miður ekki til lengur á vefnum, vegna þess að tölvuþrjótar brutust inn á kraftaheima.net og náðu að eyðileggja mikið efni, m.a myndir.  En ég náði sem betur fer að grafa viðtalið upp og það var mjög merkilegt, einkum vegna þess að Eiríkur hafði samþykkt viðtal og myndatöku, en hrökk svo skyndilega í baklás og varð mjög tortrygginn.  Við ákváðum því að taka viðtalið og myndirnar án þess að hann yrði þess var.  Hann vildi seinna aldrei kannst við neitt viðtal og var stundum að spyrja okkur um meint viðtal.  Viðtalið vakti mikla athygli og birti ég það hér og verð þá bara að bera ábygrð á því:

Viðtalið á stevegym.net

Eiríkur Björgvinsson heitir maðurinn og er kallaður prívatmaður, en gengur einnig undir nafninu Eiki Múr, en í símaskránni er hann titlaður sem frímúrarafræðingur.

Eiríkur hefur verið viðloðandi íþróttir í áratugi, stofnaði meðal annars körfuknattleiksdeild Fram og æfði einnig nokkur ár í Kjörgarði, sem Gústaf Agnarsson rak. Margir þekkja Eirík,
en hann sker sig svo sannarlega úr fjöldanum, er mjög hávaxinn maður, rúmlega tveir metrar á hæð, grannur, gengur oftast um í íþrótta-buxum oftast stuttum, jafnvel þótt úti sé 10 stiga gaddur. Buxurnar eru alltaf strengdar langt upp á maga, og hann gengur um með vindil í munnvikinu jafnan skælbrosandi.

Eiríkur er víðfrægur nuddari, heilari og sérstakur sérfræðingur um innkirtlastarfsemi líkams, en er líka fjölfróður um samfélagið og þekkir vel þau leyndu öfl, sem öllu ráða,
því ekki er allt sem sýnist. Hann hefur í mörg ár stúderað hugarheim leynifélaga, sem stjórna bak við tjöldin, frímúrahreyfinguna, sem enginn hefur svipt leynihulunni af, ef undan er skilin frímúrarinn og tónskáldið W.A.Motzart, sem í Töfraflautunni lýsti helgisiðum reglunnar og hlaut að launum eiturdauða. Aðrar leynireglur hafa einnig verið að njósna um Eirík, t.d voru stigamótakonur með hann undir eftirliti og eltu hann öllum stundum.

Viðtalið við Eirík átti sér langan aðdraganda,
enda er hann var um sig, eftir að hafa lent undir eftirliti fyrrnefndra leynifélaga:


 
 
 

Hver ertu og hvaðan ertu?
Eiki: Ég heiti Eiríkur Björgvinsson og er ættaður að vestan, en það er ekki verst að vera að vestan, ég er ættaður vestan af Barðarströnd, en er fæddur í Reykjavík og ég er 29. ára gamall
(nánari vísindalegar rannsóknir benda til að hann sé fæddur 7. ágúst 1948, eða sama ár og foringinn, Steve)


Eíríkur, af hverju ertu alltaf með rúsínur og súrmjólk á æfingum?
Eiki: Sjáðu til, þessi bleika súrmjólk er engin alvöru, bara þessi græna!

Nú varst þú landsfrægur þegar þú lentir í viðtali hjá Eiríki Jónssynni á stöð 2
Eiki: Það var lítið gagn í því, þessi sjónvarps-Eiríkur er allveg kolruglaður maður.

Þú æfir bara vel núna herra prívatmaður
Eiki: Já, svo tek ég líka leynihlaupið, það gefur árangur

Hvað er leynihlaupið langt?
Eiki: Það er upp Skólavörðustíginn og inn í Hallgrímskirkju og upp stigana alveg upp í turn -sko,alls enginn lyfta notuð kall minn.

Og hvað hleypurðu margar umferðir?
Eiki: Það er ekki gefið upp maður því það verður að vera leyndarmál svo ég taki engin met af Stebba.

Er Steve svona leyndardómsfullur líka?
Eiki : Já,hann gefur ekki allt upp svo hann haldi velli sjálfur.

Hvernig er það með svona heilsufrík eins og þig reykirðu nokkuð?
Eiki: Ég fæ mér stundum heilsuvindil á kvöldin þegar skyggja tekur

Hvað finnst yður um konur og lyftingar?
Eiki:
Það er ekki verra en hvað annað....en, það er örvandi, já mjög kynörvandi.

Hvað finnst yður um vændi, vændiskonur og súludansmeyjar?
Eiki: Þær eru ágætar, frænka mín vinnur í stjórnarráðinu og sörverar ofan í liðið.

Er hún súlumey?
Eiki: Nei , hún sér bara um þessa menn.

Ert þú þá meðmæltur vændi og vændis-frumvarpinu?
Eiki: Hvað er þetta maður, er ég nú orðin meðmæltur vændi, af því ég ligg hérna flatur eins og skata í sóffanum (Eiríkur hækkaði róminn, enda orðin frekar æstur), en já, reyndar er ég nú á móti þessu, algjörlega á móti þessu vændisfrumvarpi, þess vegna finnst mér allveg ótækt að menn séu að kaupa sér mellur.

Á svo að halda áfram að æfa?
Eiki:
Já,já,maður verður að halda sér í formi áfram og mæta hérna á meðan allir eru hressir og ég að verða hálfgerður rúsínuköttur og kannski ætti ég að taka mér það nafn, sökum liðleika þar sem ég slæ Kára ketti við á því sviði-ég er sko ekki hættur að æfa...

Að svo búnu þökkuðum við Eiríki fyrir ágætt viðtal og í sama mund fór prívatmaðurinn að teygja á löngum löppum sínum upp á hnébeygjustadífin í splittstöðu!

Viðtalið tóku í sameiningu: Kári E.(Magister Cat) og Gunnar Freyr(Master) í des 2003 til febr.2004

 

 
 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Skemmtilegur maður hann Eiríkur múrari( kallaður frímúrari til gamans)  Hann var daglegur gestur í vinnunni minni undanfarin ár.  Hann er einn skemmtilegasti sérvitringur sem ég hef kynnst.  Hann pantaði sér næstum alltaf appelsín á fæti og fékk sér kökusneið með því.  Á meðan hann reykti fékk hann sér alltaf heilsuvindil, en hann hætti að reykja í nóvember í fyrra.  Það var leiðinlegt að heyra um andlát hans í síðustu viku, góður maður er genginn til vits feðra sinna.    Mér þótti vænt um hann. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.6.2009 kl. 03:16

2 Smámynd: arnar valgeirsson

þetta var skemmtileg lesning. ég er ekki viss um hver eiríkur var en held það þó. og ekki síst þegar að "buxur voru strengdar upp á maga" kom fram.

æ, þetta endar víst alltaf svona. hjá öllum.

arnar valgeirsson, 19.6.2009 kl. 10:51

3 identicon

Fín grein hjá þér Master um glettilegan mann það var auðvitað spes lífsreynsla að taka þetta rómaða viðtal við Privatmanninn og maður gleymir nú aldrei nuddtímunum hjá honum og mörgum ræðum hans í Stevegym..

Kári magister (IP-tala skráð) 20.6.2009 kl. 19:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Freyr Rúnarsson
Gunnar Freyr Rúnarsson
Kominn á góðan aldur og í góðu jafnvægi.

Spurt er

Hvað á ég að gera á HM?

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband