Korter fyrir IV (X-F)

Ef ég kýs ekki Samfylkinguna, þá er bara einn flokkur sem kemur til greina. Það er Frjálslyndiflokkurinn. Frjálslyndiflokkurinn vegna þess að hann er einn af fáu heiðarlegu stjórnmálaöflum sem er með alvöru mál á sinni könnu. Þá er ég að tala um mesta rán Íslandsögunnar, kvótamálið alræmda. Um miðjan níunda áratugsins hófst þessi óskapnaður, en upp úr 1990 hófst frjálsa framsalið, þar sem útgerðamennirnir sem fengu aflaheimildirnar frá stjórnvöldum að gjöf, fóru að selja og veðsetja óveiddan fisk úr sjónum á miklu yfirverði. Allskonar rugl hefur verið í gangi þessi ár, meðal annars hafa sjómenn hent fiski í sjóinn í tonnavís til að koma með sem stærstan fisk að landi. Þetta hefur milljón sinnum verið bent á og verið sannað, m.a í Kompásþætti í vikunni. Heilu byggðarlögin hafa lagst í eyði vegna þess að kvótinn hefur verið seldur burt, en ekkert hefur verið gert til að breyta kerfinu þannig að gömlu sjávarútvegsbæirnir héldu velli. Kerfið hefur engum árangri skilað og er er bæði óhagkvæmt og ósanngjarnt. Fiski er kastað í sjóinn og kvóti er seldur & leigður á okurverði osf. Samt vilja stjórnarflokkarnir engu breyta og þjóðfélagið er svo rotið að þingmenn úr flestum flokkum stunda hagsmunagæslu fyrir kerfið. M.a var einn af upphafsmönnum kerfisins og seinna sjávarútvegs&forsætisráðherra að verja kerfið alla tíð, en vitað var að fjölskylda hans hafði hagnast um hundruðir milljóna á kvótanum. Þegar hann var spurður út í þessi tengsl varð hann brjálaður og talaði um ofsóknir fjölmiðla gegn fjölskyldu sinni. Jónína Bj notaði sömu rök þegar fjölmiðlar fóru að spyrja réttlátra, en óþægilegra spurninga, hvers vegna stúlka sem bjó á hennar heimili fékk ríkisborgararétt eftir rúmlega eitt ár á Íslandi. Svo er það annað að það sem ég upplifi í starfi mínu síðustu tíu ár get ég ekki fjallað um, því ég verð að halda trúnað. Ég má því ekki segja dæmisögur um fólk sem hefur misst allt sitt vegna þess að kvótinn var fluttur úr byggðarlaginu, eða fólk sem keypti kvótalausa báta osf. Fólk sem var í sjálfsvígshættu vegna þess að sjálf lífsbjörgin var tekin frá þeim og byggðarlaginu af því að einhver kvótagreifi sem fengið hafði óveiddan fiskinn í hafinu gefins seldi kvótann úr byggðarlaginu. Hagsmunagæslan er svo hrikaleg að 80% þingmanna standa vörð um þetta mesta rán Íslandssögunnar. Meira að segja fiskifræðingarnir í Hafrannsóknastofnun eru flæktir í svindlið. Síðast var skákfélagi okkar Helgi Áss farinn að verja kerfið með lagaflækjum, en eitt fyrsta starf hans sem nýútskrifaður lögfræðingur er að verja þetta góða kerfi með styrk frá LÍU.

Það hefur verið svo mikið skrifað um kvótakerfið og margar kosningar farið fram þar sem almúginn gat fellt kvótakarlana af þingi og fengið réttlætinu fullnægt. En það hefur ekki gerst og mun örugglega ekki gerast úr þessu. Hugsanlega verður of seint að hrufla við þessu viðbjóðslega kerfi eftir einhver ár, en sagnfræðingar framtíðarinnar munu mikið skrifa um hvers vegna stjórnmálamenn og almenningur lét þetta kerfi líðast. En fræðingar framtíðarinnar munu samt vita að það var bara einn flokkur sem sagði sína skoðun afdráttarlaust. Tökum sem dæmi núverandi sjávarútvegsráðherra Einar Guðfinnsson sem alla tíð var á móti þessu kerfi, þangað til hann settist sjálfur í stól sjávarútvegsráðherra. Það er aumkunarvert að sjá hann verja þetta kerfi sem er að leggja Vestfjarðarkjálkann í rúst. Vestfirðir eru æskustöðvar forfeðra minna í föðurætt, en forfeður mínir sóttu sjóinn mann fram að manni í margar aldir og enginn bannaði þeim að sækja lífsbjörgina í hafið.

Annað nauðsynlegt stefnumál Frjálslyndaflokksins er skýr stefna þeirra í málefnum útlendinga. Hann er eini flokkurinn sem vill stoppa endalaust flæði útlendinga frá austur Evrópu, sem hingað koma stjónlaust frá evrópska efnahagssvæðinu. Fyrst var ég auðvitað rosalega reiður þegar ég heyrði málflutning þeirra og enn reiðari þegar flestir rasistakaffihúsaspekingar landsins fóru að styðja flokkinn. Flestir af þroskahefta liðinu sem hafði verið að gæla við fasisma fór að styðja flokkinn og ég og margir vinir mínir sem tengdust útlendingum fóru að gefa skít í Frjálslynda, en síðan fór maður að hugsa málið betur. Frjálslyndi flokkurinn hefur ekkert á móti útlendingum, né heldur á móti fólki frá þriðja heiminum, sem hvort eð er fær ekki að koma hingað lengur. Frjálslyndi flokkurinn vill bara stíga rólega til jarðar og forðast að hér fyllist allt af fátækum austurevrópubúum sem hingað mega koma óheft í hundraða, þúsunda og jafnvel milljóna tali án þess að hafa hér atvinnuleyfi. Hingað á eftir að flæða glæpamenn og dópsmyglarar frá eystrasaltslöndunum og frá Rúmeníu og Búlgaríu munu koma betlarar og rónar. Hingað munu þeir koma óheft þangað til við rönkum við okkur og förum að stjórna flæðinu. Fyrir þrem vikum bankaði maður hjá mér og vildi selja mér blóm til styrktar götubörnum í Rúmeníu. Ég lokaði hurðina á hann, en sé mest eftir því að hafa ekki hringt á lögregluna, því svona safnanir eru ólöglegar. Viku síðar var ég að keyra í hjarta Reykjavíkur og sá þá rúmenskan Síguna, sitja með harmoniku sína og var að betla með harmonikuspili. Þetta var á horninu á Austurstræti og Pósthússtræti í innsta hjarta Reykjavíkur, þar sem við mér blasti ný og óhugnanleg sýn. Eldri tatarakona sat við hlið hans og út úr Landsbankanum í Austurstræti komu svo tveir Sígunar í viðbót með ókeypis kaffi í plastmáli. Ég stoppaði bílinn og lamaðist eitt andartak. Mér hefur í raun aldrei brugðið eins mikið af minna tilefni og fór að hugsa hvað væri eiginlega að gerast. Í fréttum Rúv í kvöld kom svo fram að tugir Rúmena af Sígunaættum væru á leið úr landi, eftir að hafa verið hér í dularfullum erindagjörðum. Flestir voru þeir með harmonikuna um hálsinn og ætluðu að betla pening á Íslandi. Ekki miskilja mig því ég vil fá hingað útlendinga í hæfilegum skömmtum frá öllum löndum heims, en ef við opnum landið alveg fyrir örfáum þjóðum austur Evrópu, en lokum á allar aðra þá erum við á rangri leið.
XF.is

Glitnir

Glitnir er minn viðskiptabanki. Ég byrjaði reyndar í gamla Alþýðubankanum á Suðurlandsbraut, sem seinna gekk inn í Íslandsbanka, en heitir í dag Glitnir. Ég kýs hins vegar að kalla bankann minn Íslandsbanka áfram og kæri mig ekki um að nota þetta Glitnis nafn. Græðgisvæðing samtímans leiðir til þess að flest fyritæki skipta um nafn til að ganga í augun á erlendum viðskiptavinum. Af hverju mega þessi fyrirtæki ekki heita góðu nöfnum eins og Búnaðarbankinn, Esso, Íslandsbanki osf? Þetta er auðvitað algerlega óþolandi. Eins og áður sagði byrjaði ég í gamla Alþýðubankanum á Suðurlandsbraut, þegar allir starfsmenn Verkamannabústaða í Reykjavík var þröngvað til að geyma launin sín í bankanum. Ég hef haldið tryggð við þetta útibú 526 síðan þótt að bankinn hafi tvívegis skipt um nafn á tímabilinu. Um nokkra ára skeið fór ég að skipta við Spron, en kom sem betur fer alfarinn heim fyrir nokkrum árum og haldið mig við útibúið á Suðurlandsbraut. Ég rálegg fólki eindregið að segja skilið við Spron. Þeir eru fínir meðan vel gengur, en þegar harðnar á dalnum hjá einstaklingum er Spron skítafyrirtæki. Það voru þeir sem plötuðu fult af viðskiptavinum til að fá sér VELTIKORT. Hundruðir manna fóru hreinlega á hausinn eða eru ennþá að berjast í bökkum eftir þann glaðning. Bloggarinn fékk m.a sent veltikort á sínum tíma og var mörg ár að vinna sig út úr vandræðunum. Sumir félagar bloggarans hafa hins vegar aldrei komist út úr vítahringnum. En Spron voru hins vegar góðir við mig um daginn þegar þeir gáfu Sigurði Rúnari litla disk með Eiríki Haukssyni. Kannski eru þeir ekki svo slæmir eftir allt saman.

En Glitnir komu hins vegar ómerkilega fram við Bjarna Ármannsson, þegar þeir sögðu honum upp störfum og réðu hálgerðann ungling í starfið. Eftir að eignarhald á bankanum breyttist varð Bjarni að víkja og nýju eigendurnir hafa bannað Bjarna að vinna við aðrar bankastofnanir næstu misserinn og hann fær bara smánarskaðabæur sem duga varla fyrir salti í grautinn. Bjarni hefur fyrir mörgum munnum að sjá, en hann fær bara skítnar 800 milljónir auk þess lítilræðis sem hann hafði hagnast áður á hlutabréfakaupum. Það er auðvitað algert hneyksli að borga manninum ekki almennilegar skaðabætur, því ekki hleypur þessi maður í nýja vinnu. Ég hef því ákveðið að hefja söfnun til styrktar Bjarna svo hann eigi fyrir salti i í grautinn. Ég finn virkilega til með honum. Ég vona líka svo sannarlega að þegar minn gamli vinnufélagi í unglingavinnuni, Sigurjón Árnason hættir hjá Landsbankanum þá muni Björgúlfsfeðgar koma betur fram við hann en hrottarnir hjá Glitni komu fram við Bjarna. Það er lágmarkskrafa að þessir menn fái góða starfslokasamninga, en ekki einhverja smáaura eins og rétt var að Bjarna.

Og annað tengt þessu. Fyrir um áratug prófaði ég að æfa karate í nokkra mánuði hjá Karatefélagi Reykjavíkur. Þar æfði ég meðal annars með Guðmundi Helgasyni gömlum lyftingamanni og nokkrum fleirri góðum mönnum og konum. Þeir sem voru að þjálfa okkur voru meðal annars Atli Erlendsson, Grétar Haraldsson og bróðir hans Vilhjálmur, sem þá var bara unglingur. Einnig var þarna ungur maður um tvítugt, sem mig minnir að hafi verið að byrja í viðskiptafræði í háskólanum. Sá ungi maður hét Lárus og var bara ágætis náungi, en maður tók eftir því að hann var að byrja að grána í vöngum svo eftir var tekið. Lárus þessi stjórnaði oft æfingunum hjá okkur þegar meistararnir voru fjarverandi. Ég var alveg búinn að gleyma þessum tíma, þegar ég sá rétt rúmlega þrítugan gráhærðan mann í sjónvarpinu í vikunni, en hann var í viðtali í tilefni þess að hann hafði tekið við aðalbankastjórastöðu hjá Glitni. Eitthvað kannaðist ég við andlitið á þeim gráhærða og þegar að viðmælandi hans spurði um áhugamál, sagði nýráðni bankastjórinn að hann hefði stundað karate í mörg ár. Aðalbankastóri minn er því gamli karatekennarinn minn.

Korter fyrir III (X-S)

Jæja, hvað á maður að kjósa?  Fyrst ætlaði ég að kjósa íhaldið mitt, en fór svo að hugsa um grænu karlana í Framsókn, en núna er maður að hugsa heim og kjósa minn gamla flokk Samfylkinguna,   Minn flokk segi ég, því ég er skráður félagi í þeim merka flokki.  Skráði mig í hann um árið til að styðja nokkra góða í prófkjöri, m.a Mörð Árnason, Ingibjörgu Sólrúnu, skákvin minn Össur og Guðrúnu Ögmundssdóttir.  Það var eins gott að Guðrún sé hætt, því ef hún væri í framboði þá myndi ég strika hana út, vegna klíkuskaparins í Jónínumálinu.  Ég bakka ekkert með það að ég tel að með því að veita þessari stúlku ríkisborgararrétt eftir aðeins 15. mánuði sé Íslandsmet.  Bendið mér á eitt sambærilegt dæmi og ég mun éta svörtu stúndenthúfuna mína.  Ef nefndarmenn í allsherjarnefnd hafa fallið í þá gryfju að vorkenna einum umsækjanda vegna skerts ferðafrelsis, þá er það bara brandari.  Allir útlendingar sem hingað koma frá þriðja heiminum búa við skert ferðafrelsi.  Svona er því miður heimurinn og við öll höfum þurft að kyngja því að búa við þessa múra.  Þessi stúlka hefði bara þurft að fara í biðröðina eins og þúsundir annara sem hérna dvelja.  Hún og fjölskylda ráðherrans þurfa að beygja sig undir m.a Schengensamninginn, en sá samnigur býður þó upp á að fólk frá þriðja heiminum geti ferðast innan svæðisins að vild, en reyndar ekki til Bretlands.

Gott og vel!  Guðrún Ögmundsdóttir er hætt og ég get kosið Samfó með góðri samvisku.  Ég er í raun vinstri kommi að upplagi, eða í versta falli vinsti krati eins og Ögmundur Jónasson, en hef alltaf verið þeirrar skoðunar að vinstri menn eigi allir að vera í einum stórum vinstri flokki.  Þess vegna studdi ég samfylkingu vinsti manna í upphafi og bakka ekki með það.  Þoldi heldur aldrei þessa vinstri Grænu í upphafi.  Skallagrímur Sigfússon og Hjörleifur Guttormsson ákváðu að kljúfa sig úr á síðustu stundu og skemmmdu allt plottið.  Og aumast af öllu var sá feluleikur að breiða yfir kommastimpilinn og þykjast vera grænir, en ekki rauðir.   Það var ég líka alltaf að segja Stebba komma félaga mínum að við Kúbúkommar ættum að vera í samfylkingu vinstri mann og seinna gera byltingu innan frá, en ekki að kljúfa okkur frá með sveitapakkinu og kvótakarlinum Skallagrími frá Þistilfirði.

Svo hef ég líka alltaf haldið svo mikið upp á Jón Baldvin eftir að hann lenti í götuslagsmálunum hérna um árið.  Flestir kraftlyftingamenn elska hann eftir að molarnir björguðu karlinum þegar einhver durgur ætlaði að berja Jón fyrir utan Gaukinn fyrir meira en áratug.  Jón tók víst hraustlega á móti, en þáverandi heimsmeistari í kraftlyftingum og nokkrir aðrir björguðu honum og Jón bauð þeim svo öllum á Vestugötuna í mikla gleði fram eftir nóttu, þar sem Bryndís frænka eldaði ofaní liðið.  Enginn virðist lengur þora að steðfesta að þessir atburðir hafi í raun gerst og bera við minnisleysi eins og í Jónínumálinu, en margir unnendur kraftasports dýrkuðu Jón eftir þennan atburð og gera enn.  Hins vegar þurfti Jón að hverfa frá sameiningu vinstri manna í áratug  í einhver sendiráð.  Flótti Jóns á sínum tíma voru svik og ég vissi um harða Alþýðuflokksmenn sem ætluðu að færa honum skít í poka fyrir þennan gjörning, enda var Jón afburðarmaður og átti að leiða okkur Samfylkingamenn til sigurs á sínum tíma.  Núna stendur karlinn á hliðarlínunni og gerir okkur mikið gagn eða hitt og heldur með þessu daðri sínu við Íslandshreyfinguna og svo framvegis, en hann  hætti auðvitað við á síðustu stundu og sagðist vera jafnaðarmaður og gæti ekkert annað.  Upphlaup hans í Silfri Egils reglulega er auðvitað góð fyrir samstöðu okkar samfylkingamanna, svona út á við.

Svo eru auðvitað fullt af alvöru kommum sem eru í framvarðasveitinni, m.a vinur minn Össur fyrrum allaballi, Ingibjörg eðalkommi og rauðsokka, Mörður og svo auðvitað Margrét Frímannsdóttir.  Við vorum stórir fyrir nokkrum árum og verðum stórir, enda eigum við að  vera með rúmlega 30% fylgi.  Merkustu hagfræðingar þjóðarinnar segja að við séum með bestu efnahagsstefnu sem í boði er, enda fengum við fyrrum seðlabankastjóra Jón Sigurðsson aftur í stjórnmálin.  Ég er að meina Ísfirðinginn Jón Sigurðsson, en ekki þann græna og spillta úr Bólstarhlíðinni, en sá Jón er núna að ganga frá Framsóknarflokknum dauðum með "kjörþokka" sínum, því Framsóknar Jón græni lýtur út eins og róni á tveggja mánaða túr og getur því varla bjargað mínum gamla flokki frá hruni.

  

Ingibjörg Sólrún var stórstjarna í R-listasamstarfinu fyrir nokkrum árum, en eftir að hún fór í landsmálin féll stjarna hennar um hríð, m.a vegna eineltis pólitískra andstæðinga og Morgunblaðsins, en núna er stjarna hennar byrjuð að skína aftur.  Jón Baldvin er kominn heim til okkar í Samfó og vinur minn og Ingibjargar Sólrúnar, Össur Skarphéðinsson er í fantaformi og við eigum klárlega eftir að vinna stórsigur í kosningunum eftir hálfan mánuð.  Ég held að kjósendur til vinstri eigi ekki eftir að kjósa gerfikomma og Skallagrím, en þeir kommar fóru að mælast með risafylgi í nokkrar vikur.  Kjósendur munu á endanum sjá í gegnum þá gerfirauðu og munu á endanum sameinast okkur í Samfylkingunni.

XS.is.

 


Frábært Jónína Bjartmarz

Ég er mjög ánægður með Jónínu mína Bjartmarz. Veit ekki hvernig þetta gat gerst, en ég hef aldrei heyrt að tvítug stúlka frá suður ameríku (afríku, asíu) fengi ríkisborgararétt eftir að hafa dvalið í landinu tæplega eitt og hálft ár á námsmannavísa. Núna segja nefndarmenn í allsherjarnefnd að 30 prósent af þeim sem sækja um ríkisborgararétt séu í sambærilegri stöðu og unga konan. Frú Deng þurfti bara að bíða í sjö ár eins og hundruðir annara nýbúa. Auðvitað áttum við að tala beint við Jónínu Bjartmarz og hún hefði reddað málunum. Ég hvet alla útlendinga sem hafa verið hérna 12 mánuði eða meira til að sækja núna um til alsherjarnefndar um undanþágu á reglunum. Og verst að Guðrún Ögmunds sé að hætta á þingi, því ég ætlaði að tala við hana um að hjálpa fimmtíu tælendingum að sækju um ríkisborgararétt. Rosalega er ég svektur að hafa ekki fattað þessa leið fyrir Deng og alla hina. Núna beini ég öllum útlendingum sem ég þekki til Bjarna Ben og Jónínu Bjartmarz. Þetta er að sjálfsögðu enginn klíkuskapur og ég skil Jón Sigurðsson, Jónínu og alla góða framsóknarmenn að þeir séu að springa úr reiði yfir þessum dylgjum blaðasnápa eins og Helga Seljans. Það er nefnilega miskilningur að það þyrfti að vera mjög sérstakar ástæður fyrir undanþágunni. Af hverju er alltaf verið að ráðast á okkur framsóknarmenn? Djöfulsins skíthælar eru þið öll. Þetta var enginn klíkuskapur. En ég get bara ásakað sjálfan mig fyrir að hafa ekki talað við Jónínu Bjartmarz strax um aldarmótin. Þá hefði Deng getað ferðast um allan heiminn á íslensku vegabréfi. Tökum sem dæmi þegar við vorum strandaglópar á landamærum Gibraltar af þvi að frú Deng fékk ekki að fara yfir á tælensku vegabréfi. Ég hafði borgað heimsferðum tvo rándýra miða til að skoða klettana, en Heimsferðir vildu síðan ekki bæta okkur þessar hundrað evrur og ég hef því ekki skipt við þá drulluhala síðan. Ári seinna vorum við stödd á landamærum Austurríkis og gátum ekki farið yfir til gömlu Júgóslavíu, Ungverjalands eða annara slavneskra landa vegna þess að við vissum ekki af Jónínu Bjartmarz. Ég segi því að minn flokkur er eini flokkurinn sem gerir eitthvað fyrir útlendinga. Og hættið svo að ráðast svona á Jónínu Bjartmarz og Framsóknarflokkinn svona rétt fyrir kosningar. Helvítis lýðskrumararnir ykkar.
XB.IS

Ný della

Ég hef síðustu vikurnar fengið nýja dellu, en dellan sú er kölluð hnébeygja. Ég hef í raun haft minni áhuga á hnébeygju, en hniti kvenna. Hins vegar hef ég stundum nauðugur og viljugur þurft að æfa þessa leiðindaræfingu til þess að styrkja mig í réttstöðulyftu. Fyrir nokkrum árum var ég aumur í hnjám og missti því áhuga og getu til að taka þessa æfingu, en hnébeygja er ein grein í kraftlyftingum sem ég hefði viljað láta banna eins og pressuna í lyftingum forðum. Hins vegar eru tímarnir breyttir og ég reikna með að halda áfram að æfa mig og keppa í þessari skrítnu íþrótt á næsta ári ásamt æfingafélögum mínum. Ég keppti í fyrsta skipti í alvöru í þessari grein núna um helgina og náði að beygla 230 kg. Í hinum tveim greinunum (bekkpressu&réttstöðulyftu) er ég að nálgast mitt besta. Ég stefni á að taka 260 kg í enda þessa árs í þessari skrítnu æfingu. Mótið um helgina var Íslandsmeistarmót WPC sambandsins í kraftlyftingum og ég náði þar silfurverðlaunum, en keppendur í mínum flokk voru fimm talsins og sumir býstna sterkir, þannig að ég get í raun vel við unað. Þegar ég fer að taka alvöru þyngdir í þessari "nýju" grein get ég farið að keppa um gullið.
Á myndinni hér fyrir neðan er ég að taka 230 kg, en nánari úrslit á mótinu má nálgast
hér.


Tímamót

Ég kláraði síðasta tímann í sjúkraliðanum á mánudagskvöld og skilaði
lokaverkefninu í hjúkrun tveim dögum seinna. Það er alveg einstaklega
þægileg tilfinning að þurfa ekki að þvælast oftar upp í Breiðholt, en
hins vegar var maður nú ekkert rosalega duglegur að mæta á
fyrirlestrana. Síðasti kennslutíminn var hefbundinn, en kennarinn var
samt óvenju uppstökk og var greinilega fegin að vera komin í frí. Núna
á bara eitt próf eftir og þá er ég orðinn aðstoðarhjúkka. Útskirftin
verður í lok mai og þar sem ég tók frí á síðustu önn, vegna
Thailandferðar, þá þekki ég ekki neinn úr útskrifarhópnum. Og í
lokaáfanganum þekkti ég bara eina manneskju fyri utan kennarann.

Korter fyrir II

Ef ég kýs ekki Íhaldið mitt mun ég án efa kjósa Framsókn. Hinn eina og sanna íslenska flokk, sem var svo farsæll á síðustu öld. Þá þurfti hann ekki endilega að fá eins mörg atkvæði, því kjördæmakerfið var þannig hannað að fylgið út á landi vóg þyngra en fylgið í þéttbýli. (og gerir reyndar ennþá) Vegna þessa varð Framsókn lengi vel valdamesti flokkur landsins með frekar lítið atkvæðamagn á bak við sig. Framsókn hefur líka verið lengi í uppáhaldi hjá bloggaranum, því þegar hann var ungur maður var Steingrímur Hermannsson formaður flokksins mjög vinsæll og skemmtilegur leiðtogi. Hann keyrði um á Blaizer og átti einbýlishús á Arnarnesinu. Stórveldið SÍS sem var innvígt og innmúrað inn í Framsókn og heillaði mann líka, því við strákarnir kölluðum SíS alltaf mafíuna, enda stóðu þeir upp í hárinu á Kolkrabbaveldi íhaldsins með miklum glæsibrag. Ég var einmitt að vinna í unglingavinnunni á Kirkjusandi og var stoltur af þessu mikla veldi sem ég starfaði fyrir, með þá Erlend Einarsson og Guðjón B. Ólafsson í forustu.Í dag er SÍS veldið hrunið til grunna, en Framsókn berst fyrir lífi sínu, því flokkurinn virðist bara tapa á stjórnarsamstarfinu við Íhaldið meðan þeir halda alltaf sínu. Er þetta nú sanngjarnt? Ættu ekki báðir flokkarnir að hagnast á farsælu stjórnarsamstarfi í meira en áratug? Tökum sem dæmi Írakstríðið. Allir vita að foringjarnir tveir sem tengdu okkur við þessi stríðsátök voru bara að gera þetta í góðri trú, því ameríski herinn var búinn að boða brottför af Miðnesheiði og því urðum við að styðja okkar stóra bróður í stríðsátökum jafnvel þótt að þau væru vitlaus. Og það voru við Framsóknarmenn einir manna sem viðurkenndu að stuðningur okkar við stríðátökin voru vegna þess að við vildum ríghalda í herinn og skapa okkur samningstöðu. Hjálmar Árnason viðukenndi þetta, þegar enginn annar þorði að segja okkur sannleikann. Og hvað um það þótt að við hefðum ekki verið ein af þessum bandalagsþjóðum, þá hefði það ekki breytt neinu um mannfallið í stríðinu, því við sendum þangað engann hermann osf. Að vísu hafa um milljón manna legið í valnum í hildarleiknum, en afhverju er verið að kenna okkur Framóknarmönnum um það. Styðjum áfram stærsta lýðræðisríki heims í báráttunni fyrir friði. Verum fyrstir þjóða til að styðja okkar menn í fyrirhuguðu stríði gegn Íran. Það gengur örugglega betur næst.
XB.IS

Korter fyrir

Núna er gaman því bráðum koma kosningar. Kjósendur virðast hafa ótrúlega slæmt minni, því núna koma stjórnmálamennirnir korter fyrir kosningar og lofa öllu fögru t.d í húsnæðismálum, skattmálum og öðrum velferðarmálum. Sérstaklega stjórnarflokkarnir, sem hafa núna stjórnað í tólf ár saman, en hinn flokkurinn í sextán ár. Samt á núna að byrja á sama gamla söngnum. 

 

Flott var hvernig mínir menn plötuðu öryrkja fyrir síðustu kosningar og sviku síðan allt korter eftir kosningar. Svo verða allir mjög undrandi daginn eftir kosningar þegar kjaradómur og kjaranefnd mun hækka laun æðstu embættismanna þjóðarinnar. Það er bara vitað því það gerist nær alltaf. Það er bara einn alvöru vinstri flokkur í kosningunum og hann heitir Sjálfstæðisflokkurinn. Hann hefur um langt skeið verið hreinræktaður vinstri og afturhaldsflokkur og hugnast mér það vel, því ég er mjög íhalds&afturhaldsamur í eðli mínu. En núna hefur Geirsklíkan tekið völdin í flokknum og bolað mínum mönnum frá. Davíð situr fúll upp í seðlabanka, Björn hefur barist við heilsuleysi og þessir menn hafa bolað Kjartani frænda út í horn. Meira að segja Hannes Hólmsteinn er hættur að láta sig hverfa fyrir kosningar, en hann lét sig iðulega hverfa eða var sendur í frí til að flokkurinn gæti litið út fyrir að vera miðju og vinstri flokkur fyrir kosningar. En núna gerist það ekki þörf, því með nýju valdaránklíkunni í flokknum með þá Geir Haarde, Villa Vill borgarstjóra og Guðlaug Þór, þá er minn flokkur orðinn einum of vinstrisinnaður. Kjósum því flokk allra stétta til valda fjögur ár í viðbót. Íhaldið er eini alvöru vinstri flokkurinn í dag. Ég treysti honum best til að forða okkur frá því að lenda í EB, vernda krónuna og efla stóryðju. Á tíma Davíðs bannaði hann okkur Sjálfstæðismönnum að tala um óþægileg mál eins og EB og evru, en ég óttast að aginn minnki í flokknum og litlir smákóngar lifni aftur við í flokknum vegna agaleysis, en Davíð tókst að losa sig við alla slíka á sínum tíma. Ég vona því að Geir haldi við sama hræðsluandrúmslofti í flokknum til að forða okkur frá evrópurugli. XD.IS

 

Að sjálfsögðu ætla ég að kjósa ihaldið, en verð samt að viðurkenna að fyrir nokkrum árum skildi ég aldrei hvers vegna bæjarróninn og öryrkinn væru að kjósa þennan flokk, sem virtist bara vera umhugsað um að vera í hagsmunagærslu fyrir fjármagnseigendur og sægreifa. Hvað átti fólk með 90.000 krónur á mánuði, sameiginlegt með íhaldinu. Skil það núna hins vegar þegar ég er sjálfur orðinn ríkur. Eða er ég kannski orðinn ríkur?!?  XD.IS

 

Svo skildi maður aldrei þetta hatur hans Davíð míns á nýríka liðinu eins og þeim góða manni Jóni Ólafssyni og Baugsfeðgum. Hvað átti þetta eiginlega þýða að holdgefing frjálshyggjunnar og afsprengi einstaklingsframtaksins, Jón Bæjó og Jón Ásgeir væru lagðir í einelti af mínum mönnum. Kannski skilur maður þetta seinna, þegar menn fara að opna sig meira. Og ég vil óska Birni Bjarnasyni góðs bata, en ég er búinn að fyrirgefa honum smá miskilning. Þannig var að ég mætti Birni iðulega í Sundhöllinni á morgnana, en hann var sá eini af morgungestum sundhallarinnar sem aldrei kastaði kveðju á bloggarann, þrátt fyrir að bloggarinn reyndi að heilsa meistaranum. En núna skil ég hvað var í gangi. Björn var auðvitað alltaf með BAUG fyrir augunum og tók því ekki eftir bloggaranum, þrátt fyrir að bloggarinn sé vel þéttur á velli.  XD.IS

 

Annað sem maður skildi ekki var hið fræga gjafakvótakerfi, sem 80% af alþingismönnum vorum standa nú vörð um. Bloggarinn hefur hitt fólk í sjálfsvígshættu vegna þess að það hefur farið illa út úr þessu "hræðilega" kerfi. En síðan fór bloggarinn að hugsa. Myndi hann vilja láta taka af sér það sem að honum væri rétt. Myndi hann vilja að einn daginn kæmi einhver frá hinu opinbera og færi að rukka hann um vaxtabætur eða barnabætur sem hann væri þegar búinn að eyða. Nei aldrei og þess þá heldur ef taka ætti af honum eign sem metin væri á milljónir eða milljarða og þar fyrir utan er kvótagróðinn löngu kominn úr eigu upphaflegu eigenda, í hendur nýrra aðila. Margir alþingismenn verja kerfið að sjálfsögðu vegna vina og fjölskyldutengsla, m.a forsætisráðherrann fyrrverandi Halldór Ásgríms og Ingibjörg Sólrún. Meira að segja Skallagrímur Sigfússon er orðinn varðhundur kerfisins vegna fjölskyldutengsla og Frjálslyndi flokkurinn er að gefast upp á að raupa um þetta rugl, enda er sá flokkur núna farinn á fullt í andóf gegn útlendingum með lýðskrumi og hatursáróðri. Ekki miskilja mig, því ég er alveg sammála þeim að ekki meigi galopna landið fyrir öllum, en það er hins vegar orðræða þeirra sem fer fyrir brjóstið á mér t.d á Útvarpi Sögu, sem sýnir að þeir eru að höfða til fólks með hræðsluáróðri. XD.IS


Víkingaskák

Heimsmeistaramótið í Víkingaskák var haldið í síðustu viku heima hjá Magnúsi Ólafssyni. Al-heimsmeistaramótið hefur verið haldið hér fyrir sunnan um nokkurt skeið, en er haldið að vestfiskri fyrirmynd, en Ísfirðingar héldu í nokkur ár heimsmeistarmót í leiknum á jafnframt einhverjum hátíðarhöldum. Við fyrir sunnan töldum okkur standa þeim framar í leiknum og því vildum við krýna okkar eigin meistara. Þetta er eina mót sinnar tegundar í heiminum og því c.a þrisvar sinnum á ári mætast bestu Vikingaskákmenn veraldar í kepppni í Norðurmýrinni. Við gátum ekki komið okkur saman um hvað væri Íslandsmót, Reykjavíkurmót eða heimsmeistaramót og því eru öll mót ársins keppni um titilinn sjálfan. Um síðustu jól var svo haldið Víkingamót, en þó vantaði tvo heimsmeistara MIG sjálfan sem stóð í fasteignabraski í Thailandi og Svein Inga sem staddur var í Þýskalandi. Ég gat því miður ekki varið heimsmeistaratitil minn í desember og þótti mér það frekar fúlt. Úrslit mótsins í fyrra urðu þau að Halldór Faaborg naði að verða heimsmeistari eftir hörku baráttu við Sigurð Narfa. 1. Halldór Ólafsson 4 vinn. 2. Sigurður Narfi 3 vinn 3. Hjalti Sigurjónss 2. vinn & aðrir minna Þriðjudaginn 3. apríl í siðustu viku voru hins vegar allir heimsmeistarar síðustu ára mættir, m.a titilhafinn Halldór og nýliðinn Sölvi Jónsson sem er mikið efni í skákinni. Sölvi náði m.a að sigra Faaborginn og náði jafntefli við annan fyrrum heimsmeistara. Heimsmeistarinn fyrrverandi Faaborg lenti því óvænt í neðsta sætinu. Þó vantaði nokkra sterka keppendur eins og Sigurð Narfa og Ólaf Guðmundsson sem ekki komust á þetta sterkasta Víkingaskákmót allra tíma vegna vinnu sinnar. Því miður náði bloggarinn ekki því markmiði sínu að komast í hæsta stall aftur, en hann tapaði fyrir Sveini í fyrstu umferð, eftir Sveinn náði að máta bloggarann áður en hann fattaði að báðir hefðu fallið á tíma. Í seinni umferð náði Sveinn svo að gulltryggja sigur sinn og er þar með orðinn verðugur al-heimsmeistari í greininni, þangað til á næsta móti. Úrslit mótsins: 1. Sveinn Ingi Sveinsson 6. vinniga 2. Gunnar Fr. Rúnarsson 3,5 v. 3. Sölvi Jónsson 1,5 v 4. Halldór Ólafsson 1,0 v

Comeback hjá Magister-Cat

Heyrst hefur að Kári Elíson hafi hafið æfingar aftur. Reiknað er með að þessi margfaldi meistari verði fljótur að ná sínu gamla formi, en hann hvíldi æfingar í rúmlega ár, vegna erfiðra flutninga í Vesturgötuvilluna, sem hann keypti með heitkonu sinni á síðasta ári. Núna hefur hann hreiðrað um sig í nýju höllinni ásamt frú Meiriháttar og því gat hann hafið æfingar í síðasta mánuði. Sagt er að karlinn bæti sig um tugi kílóa í hverri viku, en bloggarinn náði myndum af honum "nýlega" þar sem hann félst á að pósa fyrir myndavélina.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Freyr Rúnarsson
Gunnar Freyr Rúnarsson
Kominn á góðan aldur og í góðu jafnvægi.

Spurt er

Hvað á ég að gera á HM?

Færsluflokkar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.8.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 5171

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband