Að vera

Núna er komið að smá barnaheimspeki.  Hvað er það að vera?  Ég lærði m.a mína heimspeki hjá Þorsteini heitnum Gylfasyni og hafði miklar mætur á þeim manni.  Ekki situr svo sem mikið eftir af spekinni sem ég lærði hjá honum, en ég man þó eftir nokkrum gullkornum frá honum.  Einnig eftir fyrsta tímanum hjá honum, sem var ein skemmtilegasta kennslustund sem ég hef upplifað.  En hvað um það, þá sagði Þorsteinn okkur dæmisöguna um elstu skófluna á Siglufirði.  Skóflan var ævaforn og stórmerkileg vegna aldurs hennar, en það var reyndar búið að skipta fimm sinnum um skaft á skóflunni og sjö sinnum um blað.  Var þetta þá sama skóflan?  Er ég t.d sami maðurinn og fyrir sjö árum síðan?  Nei ekki endilega, því líkaminn endurnýjar sig reglulega og hver einasta fruma mín fyrir sjö árum er núna dauð og aðrar komnar í staðin, samkvæmt einhverri lífefnafræði-kenningu.  Líffærin eru ný, m.a augun sem hafa endurnýjað sig á sjö árum.  En andinn sjálfur?  Sálin er hún ekki sú sama?  Þú gengur aldrei tvisvar út í sömu ána, sagði sá mikli heimspekingur Herakleitus.  Já, hvað er það að vera?  Hvað er Íslendingur?  Mér var líka hugsað til gamla hússins á Austurstræti 2, sem hét síðast Pravda og svo margir sjá núna eftir.  Húsið sem var eitt af elstu húsum landsins var orðið vel yfir tvöhundruð ára, en var nokkuð upprunalegt í húsinu, nema þetta blessaða eldstæði?  Var þetta sama húsið og fyrir rúmlega tvöhundruð árum? 

Ástæðan fyrir þessum hugrenningum mínum eru frábærir tónleikar sem ég fór á í Laugardalshöll á sunnudagskvöldið.  Þar léku tvær fornfrægar sveitir, m.a Uriah Heep og Deep Purple.  Ég hlustaði mikið á Uriah Heep sem unglingur, enda hafði ég eignast flestar plötur þeirra og hafði gaman að.  En er þetta sama hljómsveitin og ég fílaði hér áður fyrr.  Er hljómsveitin ekki bara nafnið.  Dæmi um plathljómsveitir eru m.a Beach Boys, Platters osf, þar sem langflestir af upprunalegu meðlimum hljómsveitanna eru hættir.  Í sumum tilfellum eru tvær hljómsveitir með sama nafni að túra um heiminn og mig grunar að "hljómsveitin" Beach Boys sé til í tveim eða þrem eintökum, þar sem einn aðalstofnandi sveitarinnar túrar um heiminn með eigin hljómsveit, meðan tvær aðrar hljómsveitir bera Bech Boys nafnið.  Sem dæmi, þá byrjaði söngvarinn í Urriah Heep, Bernie Shaw í hljómsveitinn mörgum árum eftir að ég hætti að hlusta á þá.   Gítarleikarinn Trevor Bolder er upprunalegur.  Bassaleikarinn byrjaði í hljómsveitinni árið 1976, eða löngu áður enn ég byrjaði að hlusta á þá.  En trommuleikarinn var lang bestur.  Hvenær byrjaði hann eiginlega í hljómsveitinni?  Það sama má segja um Deep Purple, því Ian Gillan söngvari, Roger Glover bassaleikari og Ian Paice trommuleikari eru upprunalegir.  Aðalgaurinn gítarleikarinn Ritchie Blackmore hætti í sveitinni fyrir þrjátíu árum, en það er eitthvað við söng Ian Gillans, sem gefur hljómsveitinni trúverðugleika.  Jú ég var að horfa á hinar raunverulegu hljómsveitir og þetta eru alvöru rokkbönd.  Ég er ekki frá því að Urriah Heep hafi slegið í gegn, með frábærri frammistöðu.    Deep Purple voru góðir en stóðu Uriah Heep langt að baki í kraftmiklu spili.

Svei mér þá ef ég er ekki kominn með áhuga á að pæla í gömlu rokki og hlusta á þessa gömlu tónlist upp á nýtt.  En fyrst þarf maður að verða sér út um alvöru hljómflutningstæki. 

Uriah Heep í höllinni! 

Uriah Heep

1. Easy Livin    

2. Lady in Black

3. Gypsy

Deep Purple

1. Child in time

2. Smoke on the water

3. Black Night


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: arnar valgeirsson

skemmtilegar pælingar en þú gleymdir alveg "the wizard" með heep. snilld. dragðu svo fram dótið með Zeppelin, Black Sabbath og þessum úbergrúppum sem maður liggur í enn þann dag í dag. Minir gaurar, ellefu og fjórtán, sungu með öllum lögum Purple og flestum með Heep. ég var verulega stoltur af piltunum...........

arnar valgeirsson, 30.5.2007 kl. 17:46

2 Smámynd: arnar valgeirsson

....svo er mót á mánudaginn, rithöfundar, þingmenn og pöpullinn. Allir fá flottan vinning, enginn lúser........ ekki klikka á þessu. Mæting klukkan eitt.

arnar valgeirsson, 30.5.2007 kl. 17:47

3 Smámynd: Gunnar Freyr Rúnarsson

Er orðinn svo riðgaður í rokkfræðum.  Og sama á við með skákfræðin!  Kemst því miður ekki á mánudaginn, en mæti við fyrsta tækifæri

Gunnar Freyr Rúnarsson, 31.5.2007 kl. 11:35

4 identicon

Gunni minn,þetta voru snilldartónleikar

Þvílíkir snillingar á ferð.!

Guðrún.

Freka sjúkraliðakonan (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 04:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Freyr Rúnarsson
Gunnar Freyr Rúnarsson
Kominn á góðan aldur og í góðu jafnvægi.

Spurt er

Hvað á ég að gera á HM?

Færsluflokkar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband