2.8.2007 | 11:35
Haust
Í mínum huga er haustið að byrja strax í ágúst. Stutt er í að skólarnir byrji aftur og myrkrið færist yfir. Annars er það af mér að frétta að þeir tveir bústaðir sem ég var heitastur fyrir var þegar búið að selja öðrum aðila. Báðir voru þessir bústaðir á viðráðanlegu verði, en því miður voru aðrir með nef fyrir flottum eignum og voru fyrr til að bjóða í húsin. Ætli það endi ekki með því að ég fái mér bara hjól eða fellhýsi og setji það niður á lóðinni hjá Dr. Frölich á Þingvöllum. Annars er sumarið búið að vera mjög gott, en kannski er það dapurlegasta það að geta ekki hlaupið um brekkur og tún vegna ellistirðleika. Meiðslin hafa orsakað það að maður hefur ekki getað farið í alvöru fjallgöngu ennþá. En hins vegar hef ég núna meiri áhuga á að horfa á fjallahringinn frekar en að sigrast á fjöllunum. Enda er ég búinn að uppgötva, að maður er víst orðinn gamall.
Spurt er
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 5098
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
í fyrsta lagi. byggðu þér bara kofa einhvernsstaðar væni minn.
í öðru lagi. þú ert ekki gamall. þú ert miðaldra. oft á maður miklu betri spretti í seinni hálfleik sko. ekkert helveddes væl.
arnar valgeirsson, 3.8.2007 kl. 01:31
Nei, reyndar ekki hættur en það koma smá leiði, enda búinn að glíma við smá heilsuleysi, en í kvöld er ég mun hressari. Býst við að ég geti farið að stunda fjallgöngur aftur í næsta mánuði! En gaman að sjá nýja bloggvini. Ljónynja, velkomin(N) í hópinn.
Gunnar Freyr Rúnarsson, 10.8.2007 kl. 02:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.