8.10.2007 | 09:14
Carpe Diem
Það var góður dagur í Perlunni í gær, því þá var heljarinnar hátíð í tilefni alþjóða geðheilbrigðisdagsins. Glæsileg dagskrá þar sem frú Vigdís Finnbogadóttir sat á fremsta bekk og kvikmyndajöfurinn Þráinn Bertelsson var veislustjóri. Þá um morguninn hafði ég lesið athyglisverða grein í Fréttablaðinu, þar sem Þráinn afhjúpaði menningarmafíu Íslands á síðustu öld, en hún samanstóð af þeim Hrafni Gunnlaugs, Baldri Hermanns, Davíð Oddsyni og Rúnari Gunnarssyni. Þetta var flott grein hjá karlinum og var ég bara nokkuð hróðugur að var bendlaður við íslensku mafíuna. Það skildi þó aldrei vera að þessi sama mafía hafi afhent honum listamannalaunin á sínum tíma, en karlinn er klárlega einna bestur kvikmyndagerðamanna í landi voru.
Ég fór nokkuð snemma í Perluna, vegna þess að ég vildi sjá tælenska dansflokkinn á sviðinu, en Valgeir Guðjónsson kynnir tilkynnti að þessi dansflokkur hefði aldrei átt að dansa þarna og um einhvern misskilning hafi verið að ræða. Ég heyrði þetta ekki svo glöggt, en við Sigurður Rúnar urðum fyrir miklum vonbrigðum með að missa af góðum dansi.
Svo var sest að taflborðinu, í sjálfu geðverndarmótinu. Svo heppilega vildi til að flestir bestu skákmenn þjóðarinnar eru staddir hjá vinum okkar Tyrkjum í Evrópumóti taflfélaga. Keppendur voru samt um fjörtíu talsins og meðal keppenda var m.a Davíð Kjartansson einn besti hraðskákmaður landsins auk nokkra annarra víkinga. Það var því ekkert annað að gera en að bretta upp á ermarnar og tefla til sigurs og það ótrúlega gerðist svefnlausi næturvaktadraugurinn náði að leggja alla andstæðinga sína að velli. M.a Davíð fyrrnefndan, Stefán Bergsson, Jónas Spari og skákdrottninguna Guðfríði Lilju. Nánar á:
Spurt er
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 5098
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju! Verulega flott gert hjá þér
Alma (IP-tala skráð) 8.10.2007 kl. 13:46
´þú ert sko duglegur strákur og þetta er flott mynd. kemur í skak.is og hrokurinn.is von bráðar. smá umfjöllun á redcross.is
þarf ekki að draga úr neinu því þetta var sterkt mót. Helgi Ólafs ætlaði reyndar að mæta, en þegar menn eru í þvílíku stuði stoppa engir grandmasterar upptjúnaða nattevakt...
arnar valgeirsson, 8.10.2007 kl. 14:50
.. en það voru magadansmeyjar, væni minn. ætti nú að gleðja strákinn tuma.
rændi þessari mynd af síðunni þinni (þetta er opinber mynd og þú getur ekkert við því sagt), en fyrir vikið birtist hún á bæði hrokurinn.is og skak.is.
ásamt fleiri myndum og aftur til hamingju. verð fyrir verulegum vonbrigðum ef það er ekki þriðja deildin að ári...
arnar valgeirsson, 8.10.2007 kl. 18:06
jú, það er í fínu lagi að nota myndina fyrir málstaðinn, þs Rauðakrossinn & Vin. Svo er maður hégómlegur líka, enda ekki á hverjum degi sem maður vinnur mót
Gunnar Freyr Rúnarsson, 8.10.2007 kl. 19:09
þakka ykkur fyrir. Þá er bara að rúlla upp Víkingaskákinni næst
Gunnar Freyr Rúnarsson, 11.10.2007 kl. 13:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.