Loksins

Loksins hitti ég átrúnaðargoðið.  Hann dvelur nú í Laugardælargarði þar sem friður ríkir.  Því miður hitti ég ekki manninn í þessu lífi.  Sá hann stundum á Laugarveginum og eitt sinn á kaffihúsi.  Hann er sterkasti skákmaður sem uppi hefur verið og lauk sínu æviskeiði hér á klakanum.

Daginn eftir tók ég þátt í afmælismóti VINJAR í skák.  Það var eins og ég hefði fengið andlega  vitrun í Flóarhreppi í gær, því ég tefldi af ótrúlegu öryggi.  Eina skýringin á árangrinum í dag er sú andlega vitrun sem ég fékk eftir að hafa hitt meistarann í fyrsta skiptið.  Blessuð sé minning hans.

Mótið fór þannig að ég náði að vinna alla skákirnar fimm, en m.a keppanda voru m.a nokkrir 2000 stiga menn, m.a Þorvarður Ólafsson, Hrannar Jónsson, Ágúst Ingimundarsson, Bjarni Sæmundsson, Elsa Þorfinnsdóttir, Arnar Valgeirsson og Emil nokkur Ólafsson.  En Emil er að hefja aftur glæsilegan skákferil.  Emil kraflyftingamaðurinn sterki var m.a með unnið á mig í báðum skákunum (upphitunarskákinni líka).   Hrikalegur andi í skákinni í dag.

Redcross.is

Skak.is

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með þennan sigur Master!..með því að vinna allar hlýtur þú að hafa talist verðugur sigurvegari þrátt fyrir óvæntar stöðuhremmingar gegn Tryllinum.

Skrýtið að þú skulir ekki nefna Fischer á nafn í greininni og mér finnst nú ekki  beint rétt orðað að segja að þú hafir hitt meistarann!

Sir Magister (IP-tala skráð) 29.7.2008 kl. 12:19

2 Smámynd: arnar valgeirsson

þakka þér, þakka þér. vantar ekki nema örfá hundruð upp í tvö þúsund en þau koma.

stóðst þig vel, eins og sjá má á www.skak.blog.is og www.redcross.is

arnar valgeirsson, 29.7.2008 kl. 19:32

3 Smámynd: Gunnar Freyr Rúnarsson

Það er rétt.  Ég gleymdi að nefna Fischer á nafn.  Lét loks verða að því að heimsækja hann enda staddur á Selfossi. 

Gunnar Freyr Rúnarsson, 29.7.2008 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Freyr Rúnarsson
Gunnar Freyr Rúnarsson
Kominn á góðan aldur og í góðu jafnvægi.

Spurt er

Hvað á ég að gera á HM?

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband