12.1.2008 | 05:23
Til umhugsunar
Hvað er eiginlega að gerast í þessu þjóðfélagi okkar? Við sem erum hlynntir ofurlítilli fjölmenningu erum gífurlega óhress með þessi glæpagengi sem hingað hafa komið á síðustu árum. Núna hafa öll landamæri opnast innan þessa meinta Schengensvæðis og ákveðnar þjóðir geta nú valsað hér um án þess að hafa nokkuð vegabréf upp á vasann. Fólk frá Póllandi, Tékklandi, Ungverjalandi, Slóvakíu, Slóveníu, Bosníu, Serbíu og Eystrasaltslöndunum, Eistlandi, Lettlandi og Litháen (Auk Rúmeníu & Búlgaríu). Flest af þessu fólki er auðvitað hið besta fólk, en síðan koma eitruðu eplin. Hvað er þetta með Litháen og glæpagengi? Ég veit að margir vinir mínir hafa spurt að því sama. Ég sem gamall Sovétdindill hef verið miður mín yfir þessari þróun. Ég hef eignast marga kunningja frá þessum löndum, m.a var ég að vinna nokkrar vikur með einni ágætis konu frá Eistlandi. Ég tel mig m.a þekkja mikið af fólki frá gömlu austur Evrópu, m.a frá Póllandi, Tékklandi og gömlu Júgoslavíu. Flest þessara landa eru nú komin innan Schengensvæðisins, en önnur lönd standa ennþá fyrir utan, lönd eins og Rússland, Hvíta-Rússland og Úkraína. Þessar glæpaklíkur frá Eystrasaltslöndunum koma óorði á allt það góða fólk sem hingað er komið. Raunar koma þeir óorði á alla útlendinga. Við viljum auðvitað enga glæpamenn hingað. Skiptir þá engu máli hvaða þjóðar þeir eru. Og glæpaklíkur og mafíur eru hið skelfilegasta mál. Annars finnst mér þessi árás mannanna frá Litháen mjög dularfull. Ég hefði haldið að þessar klíkur ættu að forðast að auglýsa sig svona með því að ráðast á lögregluna. Núna verður þetta sennilega til þess að lögreglan á eftir að breyta verklagsreglum sínum. Þeir munu vígvæðast og beita því sem þarf til að uppræta þessa austurmafíu og hugsanlega er það alveg hægt. Það er t.d hægt að snú við heilu mótorhjólaklíkunum frá norðurlöndunum meðan glæponar frá Litháen geta valsað hérna um. Væri þá ekki bara betra að leyfa Hell Angels (Vítisenglum) að koma sér hér fyrir og þá myndu þeir hreinsa hér vel til í undirheimunum. Að mörgu leiti gerðu þeir góða hluti á sínum tíma í Danmörku þegar þeir losuðu Baunana við glæpasamtök, eins og Bullshit. Þeir hafa einnig haldið austurlanda mafíum í skefjum á Norðurlöndunum. Ég held að það sé alveg hægt að stöðva þennan óþverra með óhefðbundnum leiðum. Bjóðum bara Vítisenglanna velkomna hingað. Það hvarflaði að mér að þessir Litháar hefðu ráðist á óeinkennisklæddu löggurnar til að vinna sig í áliti hjá glæpaforingjunum heima í Litháen. Árásin hafi verið hluti af einhverri innvígsluathöfn hjá þeim og geri þá núna að svakalegum töffurum. Ég vona svo sannarlega að þessum glæpónum verði vísað úr landi þegar þeir hafi afplánað sína refsingu á Litla Hrauni. Mætti ég þá frekar biðja um Skandinavíska glæpamenn. Hjá "vinum" mínum Baunum hafa Englar helvítis náð að vernda borgarna að vissu marki. Man alltaf þegar ég var að skakklappast á Norrebro heilt sumar árið 1996. Þá komst maður ekki hjá því að taka eftir Vítisenglum í hverfinu. Ég heyrði líka á tali eldri Íslendinga sem þar bjuggu að ástandið í hverfinu hefði skánað mikið, eftir að Vítisenglar hreinsuðu út hinar klíkurnar. Það verður allavegana að gera eitthvað róttækt í baráttunni við þetta nýja glæpahyski.
![]() |
Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðhald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spurt er
Hvað á ég að gera á HM?
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vandamálið er hvað mannfólkið er rotið og spillt. Venjulegri manneskju er ofboðið af fréttum næturinnar. Hvað annað getur maður sagt? Stórt er spurt þegar möguleikinn er að fá Hells sem er annarsskonar Mafía til að taka til höndunum... úff...
Alma (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 00:00
Eða stofna sérstaka sérdeild innan lögreglunnar. Hulduher manna sem fær um vopnaðir, einskonar leyniþjónustu.
Gunnar Freyr Rúnarsson, 14.1.2008 kl. 03:23
Jamm, einmitt það sem BB lagði til..
Alma (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 17:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.