Til hamingju!

Hann Davíð okkar á afmæli í dag.  Hann er hvorki meira né minna en sextugur í dag.  Einn mesti stjórnmálamaður síðustu aldar ætlar að bjóða okkur í Ráðhúsið í dag milli klukkan 17.00-19.00.  Ég ætti að geta mætt til að samfagna foringjanum.  Ég og Siggi Rúnar mætum og fáum okkur kaffi og kleinur.  Vonandi hittum við mikið af skemmtilegu fólki í afmælinu.  Ég verð að viðurkenna að ég sakna karlsins mikið úr íslenskum stjórnmálum.  En sem betur fer þá fáum við að sjá karlinn í afkomanda hans, en sonur hans Þorsteinn er farinn að líkjast karlinum með hverju árinu.  Ég man alltaf þegar ég ræddi við Baldur Hermannsson félaga minn og ég spurði hann um möguleikann á því að klóna Davíð, til að hér héldist endalaus stöðuleiki.  Hann sagði að það væri auðvitað draumurinn, en fyrst þyrfti að styrkja Kára Stefánsson & Íslenska erfðargreiningu til að draumurinn gæti ræst.  Annars er ástæðulaust að vera með einhverja draumóra, því sonur Davíðs er mjög efnilegur og tekur vonandi við krúnunni einn daginn.  Þess vegna þurftum við Sjálfstæðismenn að koma honum á þing sem allra fyrst.  Best væri að byrja fyrir norðan og því fundum við handa honum gott dómaraembætti, meðan hann væri að kynnast norðlendingum og norðlendingar honum.  Annars leiddist mér þessar árásir niðurrifsaflana af vinstri kantinum á ráðningu Þorsteins.  Tökum sem dæmi Pétur Hafstein sem mótmælti ráðningunni harðlega.  Er hann alveg búinn að gleyma sjálfur þegar hann hóf sinn feril.  Árið 1981 var hann skipaður sýslumaður á Ísafirði, af Friðjóni Þórðarsyni þáverandi ráðherra sjálfstæðiflokksins.  Pétur Hafstein var sonur Jóhans Hafstein fyrrum formanns Sjálfsóðísflokksins.  Umdeild á sinum tíma?  Já, svo er sagtBlaaHondin

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Dásmleg mynd.

Hólmdís Hjartardóttir, 17.1.2008 kl. 01:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Freyr Rúnarsson
Gunnar Freyr Rúnarsson
Kominn á góðan aldur og í góðu jafnvægi.

Spurt er

Hvað á ég að gera á HM?

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 4815

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband