Æfingablogg

Ég ætla mér að byrja með létt æfingablogg á gömlu bloggsíðunni minni.  Í sumar hef ég verið að æfa frekar létt í Silfursporti og hef m.a verið að æfa með hrikalegum köllum eins og Sverri Deddmaster og Brúno beljaka.  Eftir 4. maí hef ég verið í hálfgerðum kellingaæfingum þessum mönnum til mikillar armæðu, en núna í dag var kominn tími til að taka yfir góðar þyngdir í réttstöðunni.  3. maí síðastliðinn átti ég mitt besta mót og bætti mig m.a í samanlögðu um heil 35. kíló.  Samt hef ég verið að mæta að skyldurækni, enda lærði ég það hjá vin mínum Herði Magg hnébeygjutrölli úr Heilkennasambandinu að maður ætti alltaf að æfa minnst 3-4 sinnum í viku sama hvað á bjátar.  Það er því enginn ástæða til að hætta að keppa núna, enda mikil gróska hjá áhugasambandinu WPC og Metal sambandinu.  Því miður var ég ekki í standi til að keppa á Guttormsmótinu hjá Metal um daginn, en stefni á Íslandsmótið í réttstöðu í ágúst, síðan á Fógetamótið í bekkpressu og kannski stærsta mótið hjá mér verði í nóvember. 

Mikill andi er nú í þessu sporti, enda varð félagi okkar Sigfús Skyri Evrópumeistari í kraftlyftingum um daginn og kona hans Skyrfrúin varð líka Evrópumeistari í  kvennaflokki.  Síðan hefur því verið fleygt að sjálfur Benedikt Magnússon sé að huga að "comeback" í sportinu. 

Æfingabloggið byrjar að sjálfsögðu með upprifjun frá 3. maí, þegar Masterinn náði að toga upp 282,5 kg í réttstöðulyftu og vann þar með bráðskemmtilegan 110 kg flokk á Íslandsmóti hjá öðru sambandinu.

Æfingablogg : http://gunzfreyr.blogspot.com/

Með nýrri tölvu eru tæknimálin loks komin í lag og mun maður því loksins geta sett inn einhverjar myndir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnar Freyr Rúnarsson
Gunnar Freyr Rúnarsson
Kominn á góðan aldur og í góðu jafnvægi.

Spurt er

Hvað á ég að gera á HM?

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband