5.11.2008 | 12:35
Ekki afnema...
Ég treysti þingmönnum vel til að láta ekki klípa af sér eftirlaunin. Hávær krafa er í samfélaginu um að þingmenn afnemi eftirlaunafrumvarpið. Ég vona að þeir geri það ekki og ég treysti svo sannarlega á gullfiskaminni Íslendinga. Sjáið þið bara til, þeir bíða bara rólegir þar til allir hafa gleymt þessari kröfu og ég treysti Birgi Ármannsyni og félögum vel í sinni hagsmunagæslu. Ég held dálítið með þingmönnum í þessu máli, enda mun það bara sannast að þrælslund Íslendinga mun seint verða dreginn í efa. Megum við Sjálfstæðismenn koma til baka, sterkari en nokkru sinni. Helst hefði ég viljað sjá Davíð Oddsson koma aftur inn í stjórnmálin og taka við landsföðurhlutverkinu
Á Austurvelli fantar skulu frjósa (Hörður Torfa)
Fræjum ills þeir sá í lundu reiða
En ávallt mun ég Davíð kallinn kjósa
Úr kröggum þessum mun hann okkur leiða
(höfundur: Baldur Hermannsson, eðlisfræðingur)
Spurt er
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.