Ættartré mitt frá Sverri Noregskonungi (styttri útgáfa)

Ein frænka mín sendi mér ættbræðiblogg, sem ég byrjaði að leika mér með. Samkvæmt nýjustu útreikningum er ég nú í 24 lið frá Hákoni "Gamla" Hákonarsyni Noregskonungi.

Sverrir konungur var sonur Sigurðar ,, munns,, Haraldssonar, Noregskonungs og Gunnhildar Sigurðardóttur. Afi Sverris var Haraldur ,,gilli,, Noregskonungur, Magnússonar, ..berfætts,, Ólafssonar Noregskonungs.

1. Sverrir Sigurðarson Noregskonungur f. um 1157-4.3.1202

m. Ástríður Hróarsdóttir ( Astrid Roesdatter) hjákona.

2. Hákon Sverrisson Noregskonungur f. um 1178

m. Inga frá Vartegi

3. Hákon Hákonarson (hinn gamli) Noregskonungur f.um 1204-14.12.1263

m. Kanga hin unga (hjákona)

4. Cecilía Hákonardóttir, síðar drottning Manar og Suðureyja ( um 1248)

m. Herra Gregorius (Gregorius Andresson) riddari. lenndur maðr. f.um 1200

5. Sigríður Gregoríusdóttir, kanslara og barónsfrú í Noregi f. 1240

m. Gauti Erlingsson, kanslari Noregs og barón af Tolga

6. Hákon Gautason, hirðmaður á Refi í Noregi (um 1260-1304)

m.Hólmfríður Erlingsdóttir, húsfrú á Refi

7. Margrét Hákonardóttir, prófastfrú í Björgvin í Noregi f. 1285

m. Þorsteinn (míta) Hallgrímsson, prófastur við Postulakirkjuna í Björgvin

8. Öndundur Þorsteinsson, að öðru leiti óþekktur f. 1315

9. Hólmfríður Öndundardóttir, húsfreyja á Dal í Rennisey, gift 2.6.1366

m. Ingimundur Óþyrmisson, bóndi í Dal á Reynnisey á Rogalandi

10. Guðríður Ingimundardóttir, hirðstjórafrú á Strönd í Selvogi fædd í Noregi 1374

m. Vigfús Ívarsson (Hólm) hirðstjóri 1390-1413 fæddur 1350-1402

11. Margrét Vigfúsdóttir, húsfreyja á Möðruvöllum, f.1406-1486

m. Þorvarður Loftsson,,ríki,, höfðingi og stórbóndi á Möðruvöllum f.1410-1446

12. Guðríður Þorvarðardóttir, sýslumannsfrú í Teigi í Fljótshlíð og Strönd f. 1440

m. Erlendur Erlendsson, sýslumaður í Rangárþingi f. um 1430-1495

13. Vigfús Erlendsson, hirðstjóri og lögmaður að Hlíðarenda í Fljótshlíð f.1466

14.Guðríður Vigfúsdóttir 1495 - 1570

15. Guðrún Sæmundsdóttir 1520 - 1596

16. Hólmfríður Árnadóttir 1550 - 1634

17. Guðríður "yngri" Árnadóttir 1580 - 1613

18. Magnús Þorsteinsson 1605 - 1662

19. Einar Magnússon 1649 - 1716

20. Sigurveig Einarsdóttir 1691

21. Jón Brynjólfsson 1735 - 1800

22. Magnús Jónsson 1788

23. Þorsteinn Magnússon 1831

24. Jóhanna Sigurbjörg Þorsteinsdóttir 1873 - 1948

25. Sigrún Unnur Halldórsdóttir 1916 - 1999

26. Rúnar Gunnarsson 1944

27. Gunnar Freyr Rúnarsson 1965


Ættartré mitt frá Sverri Noregskonungi

Sverrir konungur var sonur Sigurðar ,, munns,, Haraldssonar, Noregskonungs og Gunnhildar Sigurðardóttur. Afi Sverris var Haraldur ,,gilli,, Noregskonungur, Magnússonar, ..berfætts,, Ólafssonar Noregskonungs.

1. Sverrir Sigurðarson Noregskonungur f. um 1157-4.3.1202

m. Ástríður Hróarsdóttir ( Astrid Roesdatter) hjákona.

2. Hákon Sverrisson Noregskonungur f. um 1178

m. Inga frá Vartegi

3. Hákon Hákonarson (hinn gamli) Noregskonungur f.um 1204-14.12.1263

m. Kanga hin unga (hjákona)

4. Cecilía Hákonardóttir, síðar drottning Manar og Suðureyja ( um 1248)

m. Herra Gregorius (Gregorius Andresson) riddari. lenndur maðr. f.um 1200

5. Sigríður Gregoríusdóttir, kanslara og barónsfrú í Noregi f. 1240

m. Gauti Erlingsson, kanslari Noregs og barón af Tolga

6. Hákon Gautason, hirðmaður á Refi í Noregi (um 1260-1304)

m.Hólmfríður Erlingsdóttir, húsfrú á Refi

7. Margrét Hákonardóttir, prófastfrú í Björgvin í Noregi f. 1285

m. Þorsteinn (míta) Hallgrímsson, prófastur við Postulakirkjuna í Björgvin

8. Öndundur Þorsteinsson, að öðru leiti óþekktur f. 1315

9. Hólmfríður Öndundardóttir, húsfreyja á Dal í Rennisey, gift 2.6.1366

m. Ingimundur Óþyrmisson, bóndi í Dal á Reynnisey á Rogalandi

10. Guðríður Ingimundardóttir, hirðstjórafrú á Strönd í Selvogi fædd í Noregi 1374

m. Vigfús Ívarsson (Hólm) hirðstjóri 1390-1413 fæddur 1350-1402

11. Margrét Vigfúsdóttir, húsfreyja á Möðruvöllum, f.1406-1486

m. Þorvarður Loftsson,,ríki,, höfðingi og stórbóndi á Möðruvöllum f.1410-1446

12. Guðríður Þorvarðardóttir, sýslumannsfrú í Teigi í Fljótshlíð og Strönd f. 1440

m. Erlendur Erlendsson, sýslumaður í Rangárþingi f. um 1430-1495

13. Vigfús Erlendsson, hirðstjóri og lögmaður að Hlíðarenda í Fljótshlíð f.1466

m. Guðrún Pálsdóttir, húsfreyja að Hlíðarenda f. 1480

14. Guðríður Vigfúsdóttir, húsfreyja í Ási, Holtum f. 1495-1570

m. Sæmundur ,,ríki,, Eiríksson, Lögréttumaður í Ási, Holtum f. 1480-1552

15. Guðrún Sæmundsdóttir, húsfreyja á Hlíðarenda í Fljótshlíð f.1520-1596

m. Árni Gíslason, sýslumaður á Hlíðarenda f. 1520-1587

16. Ingibjörg Árnadóttir, húsfreyja á Innra-Hólmi, Akraneshreppi f. 1550-1633

m. Gísli Þórðarson, Lögmaður sunnan og vestan, Innra-Hólmi f. 151545-1619

17. Ástríður Gísladóttir, húsfreyja á Haga, Barðaströnd f.1583-1644

m. Jón ,,eldri,, Magnússon, sýslumaður í Dalasýslu, bjó á Haga. f.1566-1641

18. Ingibjörg Jónsdóttir, húsfreyja á Bæ í Hrútafirði, f.1615-1703

m. Þorleifur Kortsson, lögmaður á Bæ í Hrútafirði. f. 1615-1698

19. Þórunn Þorleifsdóttir, húsfreyja á Möðruvöllum f.1655-1696

m. Lauritz Hanson Scheving, Sýslumaður í Vaðlaþingi, bjó á Mörðuvöllum. f.1664-1722

20. Hannes Lauritzson Scheving, Sýslumaður á Munkaþverá í Eyjafirði. f. 1694-1726

21. Lauritz Hannesson Scheving 1723 - 1784
22. Margrét Lauritzdóttir Scheving 1747 - 1818
23. Stefán Einarsson 1770 - 1847
24. Margrét "eldri" Stefánsdóttir 1796 - 1866
25. Stefán Jónsson 1817 - 1890
26. Halldór Stefánsson 1856 - 1929
27. Sigrún Unnur Halldórsdóttir 1916 - 1999
28. Rúnar Gunnarsson 1944
29. Gunnar Freyr Rúnarsson 1965


Víkingaskákþing Reykjavíkur!

vikingamot.jpgVíkingskákþingið var haldið í tilefni skákdagsins mikla og afmæli Friðriks Ólafssonar fimmtudaginn 26. janúar. Mótið var haldið á veitingastaðnum The Dubliner og átta keppendur mættu til leiks í stórskemmtilegu móti. Mikið gekk á og víkingar og valkyrjur áttust við á reitunum 85. Lea þýðversk dama frá Nurnberg sem hér starfar á vegum Rauða Krossins tefldi á sínu fyrsta víkingamóti og stóð sig með prýði. Tefldar voru sjö umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma. Sigurðvegari varð Gunnar Fr. Rúnarsson. Unglingaverðlaun hlaut Dagur Ragnarsson og kvennaverðlaun hlaut Lea. Úrslit: 1. Gunnar Fr. Rúnarsson 7.0 vinn af 8. 2. Dagur Ragnarsson 5.0 v. 3-4. Halldór Ólafsson 4.0 v. 3-4. Ólafur B. Þórsson 4.0 v. 5-6. Kristófer Jóhannsson 3.0 5-6. Arnar Valgeirsson 3.0 7. Jón Trausti 2.0 8. Lea 0.5

Er orðinn alveg helsterkur.  Stefni á að taka 315 kg í deddi í vor Devil

Nei

Ætla ekki að láta kúga mig.  Látum nýlenduveldin sækja málin fyrir dómstólum.  Vonum svo það bezta.  Reiknum svo að afkomendur okkar þurfa ekki að greiða feita-Tékkann. 

facebook

Er alvarleg að hugsa um að hætta á facebook?! 

Nei, kannski ekki alveg strax, því plúsarnir eru enn miklu fleiri en mínusarnir.  Hef kynnst mörgu nýju skemmtilegu fólki.  En líka endurnýjað ágæt kynni við fólk, sem ekki hafa verið mikil síðustu áratugina.  Gamla ættingja, vini og skólafélaga.

Það eru samt bara þessi örfáu sem teljandi eru á annarri hendi.  Á tæplega 700 facebook vini.  Örfáir hafa hent mér út eða jafnvel hafnað vináttu.  Þetta eru kannski ættingjar, eða einhverjir gamlir kunningjar sem hafa einhverjar skrítnar ástæður.

En þetta er geymt en ekki gleymt.  Þið örfáu sem hafa kramið hjarta mitt.  Nöfn ykkar verða geymd í sálartetrinu næstu árin.

Það er svo skrítið að þessir fáu einstaklingar hafa kannski brosað breiðast og viljað spjallað manna mest þegar maður hefur hitt það.  Viljað skiptast á símanúmerum og verið með álíka falsheit. 

Núna er maður amk er maður farinn að skoða viðkomandi einstakling gaumgæfilega hvort hann sé týpa til að líka þetta samskiptaform áður en maður býður viðkomandi "vináttu".  Ef viðkomandi er bara með 20-100 vini er líklegt að hann vilji ekki safna. 

Litið dæmi.  Ég hef aðeins einu sinni hafnað vináttu.  Einn furðufuglinn vildi einu sinni vera bloggvinur minn en ákvað síðan einn daginn að hreinsa mig út.  Síðar sá hann mig á facebook og vildi verða facevinur minn.

Þvílíkt fífl.  Tala aldrei við hann aftur Wink

 


Loksins!

Loksins unnu Haukar mitt lið í Hafnarfirði fótboltaleik. Held með þeim því þeir eru með svo marga góða, en eldgamlar stjörnur. Get ekki haldið með FH sem er svona Franco-fasista-liðið í Hafnarfirði. Ef ég væri Hafnfirðingur þá byggi ég á Völlunum eða í Áslandinu og myndi því sjálfkrafa halda með Haukum. Fyrir tveim árum var ég að skoða 50. milljón króna einbýlishús á Völlunum. Var fúlasta alvara, enda efnahagshrunið ekki komið á dagskrá seinni hluta sumars 2008. Unga konan hjá REMAX fannst heldur ekkert að þessu. Kaupi mér flott einbýlishús þegar ég fæ stóra lottóvinninginn, hvenær sem það nú verður. Þá flytur maður klárlega á Vellina. Áfram HAUKAR!

Biskupsmálið II

Saklaus unz sekt er sönnuð.  Karl Sigurbjörnsson er góður maður og hann er að reyna að gera sitt bezta.  Hvað vilja menn að gert sé, dæmt yfir þeim dauðu eða?

Víkingaskákin í Kastljósi á RÚV!

Víkingaskákin tók kipp í vetur, eftir mörg mögur ár.  Við höfum verið c.a sex strákar sem hafa hist nokkrum sinnum á ári síðan 2002.  Fjöldin hefur ekki verið að angra okkur, enda teljum við flestir að styrkur Víkingaskákarinnar liggi í sérstöðu hennar.  Skiptir þá engu máli hvort iðkendur séu sex eða sexhundraðþúsund.  Við sem stöndum að Víkingaklúbbnum höfum þó ákveðið að halda skákinni gangandi svo lengi sem við drögum andan og hver veit nema Víkingaskákin eigi eftir að eiga framhaldslíf!

Umfjöllun RÚV um Víkingaskákina má sjá hér:

Bloggsíða Víkingaklúbbsins hér:


C(ASH)

"Here is a special announcement to the British and Dutch Governments: For your information there is no C in the Icelandic alphabet, so when you ask for Cash, all you get is Ash…"

katla_070504.jpg


Næsta síða »

Höfundur

Gunnar Freyr Rúnarsson
Gunnar Freyr Rúnarsson
Kominn á góðan aldur og í góðu jafnvægi.

Spurt er

Hvað á ég að gera á HM?

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband